hæhæ hvað segið þið þá? rosa fjör hérna hjá okkur eins og flestir kannski vita þá fórum Ég, Írena, Summi og Emil til Danmerkur 10 ágúst í Lolland (lalandia) komum á Föstudegi þurftum að bíða í 1og hákfan tíma eftir töskunum svo taka 2 lestir og svo komumst við loksins á leiðarenda með allan farangurinn okkar hahaha fórum út að borða með allar töskurnar höfðum nefnilega ekki tíma til að fara með þær uppí hús því annars hefði verið lokað þegar við kæmum til baka.
Á laugardeginum fórum við svo í tívolíið í Kaupmannahöfn það var frábært gat allavega skemmt mér konunglega og veit að hinir gerðu það líka
nema eitt hún Írena Rut eyðilagði myndavélina mína
svo nú á ég enga myndavél við vorum bara með einnota myndavélar sem eftir varð en ef það er hægt að setja þær á disk þegar við framköllum þær þá fáið þið að sjá allar myndirnar svo bara krossið með mér fingur og tær
Á sunnudeginum fórum við svo í sundlauginna sem er þarna og var það geggjað fjör svo bara eitthvað að leika okkur þarna
á miðvikudeginum skelltum við okkur í Bonbonland ekkert smá flottur garður þó ég hafði nú búist við honum flottari
fórum eiginlega í öll tækin og var bara mega stuð hjá okkur
á Föstudeginum var svo komið að því að Summi og Emil færu heim og ég og Írena til Rakelar systir ætluðum að taka lest kl 2 en neiii þá komumst við að því að það færi engin lest kl 2 svo við þurftum að bíða á lestarstöðinni til 4 og fórum þá í lest niðrí kaupmannahöfn og þaðan fór ég og Írena í aðra lest og þeir upp á flugvöll. tekur 5tíma að taka lest frá köben til Rakelar en Írena sæta lagði sig bara og svaf alla leiðinna
nenni ekki að skrifa um alla dagana en öll kvöldin vorum við bara í húinu sem allt fjörið var og var yfirleitt komið heim um 11-12
í gær fórum við svo í farup sommerland sem var alveg gegjað vorum komin um 12leitið og vorum ekki komin heim fyrr en um 8 leitið svo á hún Írena afmæli á morgun gellan að verða 4 ára
jæja þetta er orðið fínt í dag sjáumst reyni að blogga aftur sem fyrst
